„Lengi getur vont versnað“

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins.
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins. mbl.is/Golli

Í grófum dráttum má segja að tvær leiðir hafi verið færar. Annars vegar að takmarka málafjöldann sem mest, og ljúka þinginu á 1-2 dögum. Hins vegar að setja þingfund og hefja vinnu við þessi helstu mál og bæta svo við stjórnarskrá og eftir atvikum öðru sem þingmenn vildu ræða.“

Þetta skrifar Bjarni Benediktsson forsætisráðherra á Facebook-síðu sína nú í kvöld eftir fund formanna flokka á Alþingi í dag. Hann bætir því við að samkomulag hafi náðst um hið fyrrnefnda milli allra flokka utan Pírata og Samfylkingar.

Við munum samkvæmt þessu fella uppreist æru úr hegningarlögum. Breytingar á lagaákvæðum sem varða hælisleitendur koma á dagskrá. Önnur mál varða kosningar eða formsatriði,“ skrifar Bjarni.

Nokkrir þingmenn fóru mikinn

Hann segir nokkra þingmenn fara mikinn í kvöld vegna þess að breytingar á stjórnarskránni eru ekki hluti samkomulagsins. „Þannig segir Smári McCarthy sem nýlega var í fréttum fyrir rætnar samlíkingar við mál Jimmy Savile, að ég hafi með aðkomu minni að þinglokasamningum hótað „að ógna lífi barna og neita þolendum kynferðisofbeldis um réttlæti, ef ekki yrði fallið frá mjög eðlilegri kröfu um lýðræðisúrbætur“,“ skrifar Bjarni og spyr hvort ekki sé komið ágætt af svona löguðu.

Hvað eiga svona skrif að þýða? Er þetta framlag til bættrar þjóðfélagsumræðu – leiðin til að endurheimta traust á stjórnmálum?“ spyr Bjarni og bætir við að niðurstaða langflestra þingflokka hafi verið að ljúka þingi með fáum málum og láta stjórnarskrána bíða.

Fyrir nokkrum dögum lagði ég fram tillögu að verklagi við breytingarnar sem allir formenn tóku nokkuð vel í á formannafundi. Píratar höfðu mestan fyrirvara og kröfðust þess á næsta fundi að breyting á breytingaákvæði stjórnarskrárinnar næði fram að ganga,“ skrifar forsætisráðherra og bætir við að fyrirvarar Pírata hafi orðið til þess að ekkert varð úr samkomulaginu.

Það er mín skoðun að ef hrófla á við einhverju í stjórnarskránni skuli vandað til verka, gefinn tími til umsagna og nefndameðferðar. Er það svo að þeir sem fara fram á vandað verklag við breytingar á stjórnarskrá verðskuldi ásakanir að skeyta engu um líf barna eða fálæti vegna kynferðisbrota? Ég hélt við hefðum fundið botninn í umræðu um þau mál í síðustu viku, en lengi getur vont versnað.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert