Skartgriparánið upplýst

mbl.is/Þórður

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur upplýst rán sem hún hafði til rannsóknar. Fyrr í mánuðinum var lögreglan kölluð til á heimili í Reykjavík en þar hafði maður rænt skartgripum af eldri konu.

Málið telst að fullu upplýst en tveir karlmenn á fertugsaldri voru handteknir vegna málsins. Einn karlmaður og tvær konur voru einnig handtekin vegna gruns um að hafa veitt þýfi móttöku. Eitthvað af skartgripunum var endurheimt,segir í fréttatilkynningu frá lögreglunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert