Hvalur, um sjö metra langur, sást í Friðarhöfn í Vestmannaeyjum í gærmorgun. Talið er að um andarnefju sé að ræða. Hvalurinn synti um höfnina og virtist vera við góða heilsu. Friðarhöfn er innst í Vestmannaeyjahöfn.
Valur Bogason, líffræðingur hjá Hafrannsóknastofnun í Vestmannaeyjum, taldi að um fullvaxna andarnefju væri að ræða. Andarnefja er allstór tannhvalur og er ámóta stór og hrefna. Höfuðlag andarnefju og hrefnu er þó gjörólíkt.
Andarnefjur lifa aðallega á smokkfiski en éta líka fiska, t.d. síld, sæbjúgu og krossfiska. Yfirleitt halda þær sig úti á reginhafi þar sem er 1.000 metra dýpi eða meira. Aðeins búrhvalir geta kafað dýpra en andarnefjur.