Vatnsveður á Suðaustur- og Austurlandi

Það verður rigning víða í hádeginu á morgun.
Það verður rigning víða í hádeginu á morgun. mbl.is/kort

Spár gera ráð fyrir mikilli rigningu á Suðausturlandi og Austfjörðum í nótt og á morgun. Víða mun rigna á landinu í nótt en stytta upp, nema á Suðausturlandi og Austfjörðum, upp úr hádegi.

Fremur hæg vestlæg átt og dálitlar skúrir vestanlands á morgun. Áfram stíf sunnanátt og mikil rigning um landið suðaustanvert, en dregur úr rigningu þar síðdegis á morgun. 
Hiti 8 til 16 stig, hlýjast á Norðausturlandi.

Í athugasemd veðurfræðings segir að útlit sé fyrir að það verði mjög vætusamt á Suðausturlandi og Austfjörðum út vikuna með tilheyrandi vatnavöxtum.

Veðurvefur mbl.is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert