Fyrir stundu var kveðinn upp dómur í Héraðsdómi Reykjaness í Birnumálinu. mbl.is var á staðnum og fékk viðbrögð Kolbrúnar Benediktsdóttur saksóknara við niðurstöðu dómara í málinu þar sem Thomas Möller Olsen var dæmdur í 19 ára fangelsi fyrir að hafa banað Birnu Brjánsdóttur en hún hafði farið fram á 18 ára fangelsisdóm við aðalmeðferð málsins.
Kolbrún segir að í dómsorði komi fram að alvarleiki brotsins og ásetningurinn sem fólst í því að koma líki Birnu fyrir í sjó hafi þyngt dóminn yfir Thomasi Möller Olsen.
Viðtal við Kolbrúnu má sjá í myndskeiðinu hér fyrir neðan.