Dópaður á 130 km hraða

Lögreglan stöðvaði för ökumanns á Reykjanesbraut í Garðabæ um klukkan 21 í gærkvöldi. Maðurinn ók á 130 km hraða. Reyndist ökumaðurinn vera án ökuréttinda og undir áhrifum fíkniefna auk þess sem hann var vopnaður stunguvopni. Maðurinn var færður á lögreglustöð en látinn laus að lokinni sýnatöku.

Tveir ökumenn voru stöðvaðir fyrir akstur undir áhrifum áfengis í nótt og í gærkvöldi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert