Spáð næsturfrosti næstu daga

mbl.is/Styrmir Kári

Veðurhorfur dagsins gera ráð fyrir hægri breytilegri átt á landinu en vestan 5-10 metrum á sekúndu á annesjum á Norðausturlandi. Skýjað verður með köflum og skúrir um landið vestanvert en bjartviðri austantil. Hiti verður á bilinu 3 til 8 stig en víða næturfrost inn til landsins, einkum norðaustanlands. 

Svipað verður verður líklega áfram í byrjun næstu viku nema heldur úrkomuminna. Víða verður léttskýjað og því áfram líkur á næturfrosti. Austlægar áttir frá og með miðvikudegi fram að helgi með rigningu af og til sunnanlands en þurrt á Norðausturlandi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert