Lottóvinningurinn gekk ekki út

Eng­inn var með all­ar töl­urn­ar rétt­ar í Lottó­inu í kvöld en rúmar sjö milljónir króna voru í pott­inum að þessu sinni. Einn var með fjór­ar töl­ur rétt­ar, auk bónustölu, og fær hann 308.600 krón­ur í sinn hlut.

Var vinn­ings­miðinn keyptur í áskrift.

Eng­inn var með fimm jóker­töl­ur rétt­ar í réttri röð en þar voru 2 millj­ón­ir í vinn­ing.

Fimm hlutu aft­ur á móti fjór­ar jóker­töl­ur rétt­ar í réttri röð. Hver þeirra fékk 100 þúsund krón­ur.

Vinn­ingstöl­ur kvölds­ins:4-11-20-34-40

Bón­ustal­an: 14

Jóker­töl­urn­ar: 0-0-9-0-1

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert