Bærinn tekur við rekstrinum í sumar

Herjólfur við Vestmannaeyjar.
Herjólfur við Vestmannaeyjar. mbl.is/Árni Sæberg

Vestmannaeyjabær mun taka við rekstri Herjólfs þegar ný ferja verður tekin í gagnið næsta sumar. Samningur þess efnis er á lokametrunum að sögn Jóns Gunnarssonar samgönguráðherra.

Þetta kom fram í fréttum Stöðvar 2. Óöryggi í samgöngum hefur plagað íbúa í Vestmannaeyjum lengi en bærinn hefur gagnrýnt reksturinn, sem hefur verið í höndum Eimskipa. Búist er við frekari töfum á siglingum Herjólfs í vetur.

Frétt mbl.is: Ríkið efli flugsamgöngur til Eyja

Til stóð að Herjólf­ur færi í viðgerð í nóv­em­ber. Um helg­ina kom hins veg­ar í ljós að vara­hlut­irn­ir sem nota átti í skipið stand­ast ekki kröf­ur flokk­un­ar­fé­lags Herjólfs, DNV-Gl í Nor­egi, og því þarf að end­ur­smíða vara­hlut­ina frá grunni.

Samkvæmt frétt Stöðvar 2 mun Eimskip láta af rekstri Herjólfs en Jón sagði í viðtali á Stöð 2 að bærinn yrði þá ábyrgur fyrir rekstri ferjunnar og fengi það framlag frá ríkinu sem fylgt hefði rekstrinum, í gegnum Vegagerðina. „Þetta er í lokafrágangi,“ sagði hann.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert