Vegurinn við vestari afleggjarann að Dettifossi er enn lokaður en umferðaróhapp varð þar um miðjan daginn þegar rúta með ferðamenn um borð náði ekki beygju þar.
Rútan þverar veginn að hluta til en samkvæmt Facebook-síðu lögreglunnar á Norðurlandi eystra er enn unnið að því að mjaka rútunni til.
Vegurinn er því áfram lokaður og beðið er eftir stórum vinnuvélum til aðstoðar.