Mikill viðbúnaður en um gabb að ræða

Mikill viðbúnaður var hjá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins og lögreglu vegna tilkynningar um eld á Hótel Sögu fyrir skömmu. Í ljós kom að um falsboð var að ræða.

Að sögn varðstjóra í slökkviliðinu voru sendir slökkviliðsmenn af öllum slökkvistöðvum höfuðborgarsvæðisins enda grafalvarlegt mál þegar um eldsvoða á stóru hóteli er að ræða. En í ljós kom að um gabb var að ræða og málið því komið til kasta lögreglunnar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert