Næturakstur Strætó frá áramótum

Um áramót hefst næturakstur á nokkrum leiðum Strætó.
Um áramót hefst næturakstur á nokkrum leiðum Strætó. mbl.is/Hjörtur

Umfangsmiklar breytingar verða hjá Strætó um áramót. Einstökum leiðum verður breytt, þjónustan verður aukin á kvöldin og næturakstri komið á um helgar. Þá verður sérstök sumaráætlun afnumin.

Í fréttatilkynningu frá Strætó segir að þjónustutími verður lengdur á leiðum 1, 2, 3, 4, 5, 6, 11, 12, 15, 18. Leiðirnar verða skipulagðar þannig að þær munu aka til 01.00 eða sem næst því.

Breytingarnar verða m.a. eftirfarandi:

  • Leið 6 verður stytt og tíðnin aukin. Hún mun aka á 10 mínútna fresti á annatímum og enda ferðir sínar í Egilshöll. 
  • Leið 7 kemur ný inn í leiðakerfið og mun hún aka á milli Egilshallar og Helgafellslands í Mosfellsbæ á 30 mínútna fresti.
  • Leið 2 verður lengd og  mun hún keyra áfram úr Versölum og enda í Mjódd, þar sem tenging við fleiri leiðir myndast. Leið 28 verður stytt á móti lengingu leiðar 2. 
  • Leið 21 verður breytt og mun hún nú aka um Hafnarfjörð, Smárahvammsveg, framhjá Smáralind og enda í Mjódd. Leiðin mun ganga lengur fram á kvöld og mun einnig aka á sunnudögum, sem er mikil bót fyrir Hafnfirðinga og starfsfólk í Kauptúni.
  • Leið 35 mun aka í báðar áttir frá Hamraborg og verður á 30 mín. fresti. Breyting sem bætir tengingu Kópavogsbúa við aðrar leiðir í Hamraborg. 

 Áætlanir gera svo ráð fyrir því að leiðir 1, 2, 3, 5, 6 og 11 muni sinna næturakstri aðfaranótt laugar- og sunnudags. Stefnt er að því að þessar leiðir keyri frá miðbænum á hverjum klukkutíma til klukkan 04.00-04.30.

Í einhverjum tilvikum munu leiðirnar aka eftir sínum hefðbundnu leiðum en sumar leiðir verða styttar. Leiðirnar munu eingöngu aka frá miðbænum og út í hverfin, en ekki til baka.  

Sumarið 2018 verður engin sérstök sumaráætlun með minni þjónustu innleidd eins og tíðkast hefur síðastliðin ár hjá Strætó.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert