Þingflokksfundur VG hafinn

Frá þingflokksfundi VG í græna herberginu.
Frá þingflokksfundi VG í græna herberginu. mbl.is/Eggert

Fundur er hafinn í Alþingishúsinu hjá þingflokki Vinstri grænna. Á dagskrá er eitt mál: staða óformlegra viðræðna flokksins við Sjálfstæðis- og Framsóknarflokk um myndun ríkisstjórnar.

Búast má við að tekin verði ákvörðun um það á fundinum hvort hefja á formlegar stjórnarmyndunarviðræður með umboði forseta, en Katrín Jakobsdóttir formaður hefur sagt að framhald viðræðna skýrist strax eftir helgi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert