Harður árekstur á Salavegi

mbl.is/Ófeigur Lýðsson

Harður árekstur varð á vegamótum Salavegar og Arnarnesvegar er tveir bílar skullu þar saman rétt fyrir klukkan átta í kvöld.

Tveir voru fluttir með sjúkrabíl á slysadeild Landspítalans til nánari skoðunar eftir áreksturinn. Að sögn slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu varð fólkið fyrir einhverjum meiðslum, en ekki var þó talið að þau væru alvarleg.

Bílarnir voru hins vegar mikið skemmdir eftir áreksturinn og voru þeir fluttir af slysstað með dráttarbíl.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert