Brotist inn í íbúðarhús á Selfossi

Lögregla á Selfossi handtók í morgun mann sem grunaður er um innbrot. Brotist var inn í íbúðarhús á Selfossi snemma í morgun og kom húsráðandi að manninum.

Áður hafði verið tilkynnt um grunsamlegar mannaferðir í sama hverfi.

Málið er til rannsóknar og er verið að kanna hvort að maðurinn, sem nú er í haldi lögreglu, hafi farið víðar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert