Ferðamenn í vanda á Sólheimasandi

Björgunarsveitarmenn að störfum á Sólheimasandi í kvöld.
Björgunarsveitarmenn að störfum á Sólheimasandi í kvöld. Mynd:Orri Örvarsson/Landsbjörg

Björgunarsveitir frá Vík og Hvolsvelli voru boðaðar út á sjöunda tímanum í kvöld ásamt öðrum viðbragðsaðilum, vegna ferðamanna í vanda í nágrenni flugvélaflaks á Sólheimasandi. Þetta kemur fram í tilkynningu.

Þar segir að á svæðinu sé aftakaveður og mjög lélegt skyggni. Hópurinn var í vandræðum með að komast upp á veg en tókst það að sögn að lokum að sjálfsdáðum.

Í tilkynningunni segir að grunur hafi kviknað um að annar hópur hafi leitað sér skjóls í flakinu á Sólheimasandi en svo hafi ekki verið. „Á endanum var ljóst að fólk hafði skilað sér í alla bíla sem voru á bílastæðinu, þá höfðu einhverjar umferðartafir myndast á þjóðveginum enda afleitt skyggni og aðstoðuðu viðbragðsaðilar bílstjóra þeirra bíla við að komast burt.“

Björgunarfólk hafi þurft að aðstoða við að ferja tvo bíla af svæðinu og draga bíl sem lent hafði út af veginum.

Björgunarsveitir að störfum á Sólheimasandi. Aftakaveður er á svæðinu.
Björgunarsveitir að störfum á Sólheimasandi. Aftakaveður er á svæðinu. Mynd:Orri Örvarsson/Landsbjörg
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert