Kjörin stjórnarformaður Pírata í Evrópu

Oktavía Hrund Jónsdóttir.
Oktavía Hrund Jónsdóttir. Ljósmynd/Aðsend

Oktavía Hrund Jónsdóttir var kjörin stjórnarformaður Pírata í Evrópu á fundi sem haldinn var í Prag um helgina.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.

Oktavía er varaþingmaður Pírata í Suðvesturkjördæmi og alþjóðafulltrúi framkvæmdaráðs Pírata á Íslandi. Hún er með MA-gráðu í alþjóðlegri þróunarfræði og samskiptum frá Hróarskelduháskóla.

Oktavía situr í stjórn Freedom of the Press Foundation og síðustu ár hefur hún starfað við baráttu fyrir tjáningarfrelsi, friðhelgi einkalífsins og almennum mannréttindum á vegum alþjóðlegra stofnana víða um heim, til að mynda í Berlín, Kaupmannahöfn, Washington DC og á stríðshrjáðum svæðum í þróunarlöndunum, að því er segir í tilkynningunni.

Píratar í Evrópu (European Pirate Party - PPEU) samanstanda af Píratahreyfingum í tuttugu löndum, þar á meðal Svíþjóð, Tékklandi, Belgíu og Póllandi,  auk Félags ungra Pírata í Evrópu.

„Ég er stolt og klökk yfir því að hafa fengið tækifæri til að taka við sem formaður Pírata í Evrópu. Ég hlakka til að sýna forystu og leiða okkur saman inn í framtíðina okkar, framtíð Evrópu," segir Oktavía í tilkynningunni. „Píratahreyfingin er alþjóðleg hreyfing. Hún er hvorki til hægri né vinstri heldur áfram og inn í framtíðina. Að Íslendingar hafi nú fengið tvö sæti í stjórninni er til marks um það traust sem okkur er sýnt. Þetta tökum við alvarlega og af auðmýkt.”

Hún tekur við formennskunni af Smára McCarthy, þingmanni Pírata.

Hrafndís Bára Einarsdóttir.
Hrafndís Bára Einarsdóttir. Ljósmynd/Aðsend

Auk Oktavíu var Hrafndís Bára Einarsdóttir kjörin í stjórn Pírata í Evrópu um helgina. Hrafndís Bára var í 3. sæti hjá Pírötum í Norðausturkjördæmi fyrir síðustu alþingiskosningar. Hún er menntaður viðburðastjóri og starfar við Leiklistarskóla Leikfélags Akureyrar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert