Tveir skjálftar upp á 3,9 stig

Horft til norðurs eftir Bárðarbungu.
Horft til norðurs eftir Bárðarbungu. mbl.is/Árni Sæberg

Tveir jarðskjálftar urðu norðaustur af Bárðarbungu í Vatnajökli nú rétt fyrir klukkan tvö eftir hádegi. Mældust þeir báðir 3,9 stig.

Fréttin hefur verið uppfærð í kjölfar frekari mælinga Veðurstofunnar, en fyrstu niðurstöður bentu til þess að fyrri jarðskjálftinn hefði verið 3,8 stig og sá síðari 2,9 stig.

Fáeinir eftirskjálftar hafa mælst. Engin merki eru um gosóróa, samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert