„Hlakka til að kynna samninginn“

Lilja Alfreðsdóttir ásamt Sigurði Inga Jóhannssyni, formanni flokksins.
Lilja Alfreðsdóttir ásamt Sigurði Inga Jóhannssyni, formanni flokksins. mbl.is/Kristinn Magnússon

„Ég er glöð að við séum að klára þessa vinnu og hlakka til að kynna samninginn fyrir þingflokknum,“ segir Lilja Alfreðsdóttir, varaformaður Framsóknarflokksins, í samtali við mbl.is. Ríkisstjórnarsáttmálinn er að mestu leyti tilbúinn og eins og komið hefur fram í kvöld er aðeins ráðherrakapall og málefni tengd fjárlögum eftir, en formenn munu ræða þau áfram á morgun.

Klukkan 13.00 hafa flokkarnir þrír sem standa að samningnum boðað til þingflokksfunda og verða þingmenn þar upplýstir nánar um innihald samningsins.

„Við erum á lokametrunum með þetta,“ segir Lilja að lokum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert