Sala hafin á beinu flugi á HM í Rússlandi

Stuðningsmannasveitin Tólfan um borð í flugvélinni á leið til Tékklands …
Stuðningsmannasveitin Tólfan um borð í flugvélinni á leið til Tékklands 16. nóvembar 2014. mbl.is/Eva Björk Ægisdóttir

Sala á beinu flugi til þeirra þriggja borga í Rússlandi þar sem leikir Íslands á loka­keppni heims­meist­ara­móts karla í knatt­spyrnu fer fram í sumar er hafin hjá Icelandair. Eitt flug verður til hverrar borgar, Moskvu, Volgograd og Rostov.

Ísland er í riðli með Arg­entínu, Króa­tíu og Níg­er­íu á HM. Leikið verður við Arg­entínu­menn í Moskvu 16. júní, við Níg­er­íu­menn í Volgograd 22. júní og loks við Króa­tíu í Rostov 26. júní.

„Þessi mikli áhugi fer ekki fram hjá okkur og eftirspurnin er mikil. Eins og staðan er núna er mesti áhuginn á leiknum gegn Argentínu,“ segir Guðjón Arngrímsson, upplýsingafulltrúi Icelandair í samtali við mbl.is, en sá leikur fer fram eins og fyrr sagði í Moskvu.  

Í tilkynningu segir að verðið sé frá 175 þúsund krónum. 

Ekki hefur verið tekin ákvörðun hvort boðið verði upp á fleiri flug ef það selst fljótt upp í þessar ferðir. Það mun koma í ljós þegar nær dregur, að sögn Guðjóns. Hann bendir á flugfélagið fljúgi til margra annarra borga í Evrópu sem fólk gæti einnig nýtt sér til að komast á HM. 

Fjölmargar ferðaskrifstofur eru þegar farnar að skipuleggja ferðir á HM meðal annars Vita ferðir og Gaman ferðir. Ferð á einn leik Íslands á HM í Rússlandi næsta sum­ar, þar sem gist­ing í tvær til þrjár næt­ur, flug, rútu­ferðir og eft­ir at­vik­um leiðsögn er innifal­in, gæti kostað á bil­inu 200 til 250 þúsund krón­ur. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert