Eldamennskan fór úr böndunum

Kalla þurfti til aðstoðar slökkviliðsins þegar brann við í potti …
Kalla þurfti til aðstoðar slökkviliðsins þegar brann við í potti í Rjúpufelli. mbl.is/Golli

Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað út klukkan 21 í kvöld þegar brann við í potti í Rjúpufelli í Breiðholti. Svolítill reykur var í íbúðinni sem náði svo fram á ganginn að sögn slökkviliðs.

Einn íbúi var fluttur á slysadeild til skoðunnar en hann er ekki talinn alvarlega slasaður. Ekki varð stórfellt tjón á húsnæðinu en einhverjar reykskemmdir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert