Skjálfti að stærð 3,2 í Bárðarbungu

Af vef Veðurstofu Íslands

Jarðskjálfti að stærðinni 3,2 varð í austanverðri Bárðarbunguöskjunni laust fyrir klukkan hálffimm í morgun.

Enginn gosórói er sjáanlegur, að því er kemur fram á vef Veðurstofu Íslands.

Nokkur órói hefur verið í Bárðarbungu að undanförnu.

Stærsti skjálftinn þar í síðustu viku var 3,9 að stærð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert