„Eigum ekki að þurfa að þegja lengur“

„Við stöndum saman og höfum hátt. #metoo,“ segir í yfirlýsingunni.
„Við stöndum saman og höfum hátt. #metoo,“ segir í yfirlýsingunni. AFP

Hátt í 300 konur í hugbúnaðar­- og tækniiðnaði á Íslandi hafa skrifað undir yfirlýsingu þar sem þess er krafist að þær fái að vinna sína vinnu án áreitni, ofbeldis eða mismunar. „Við stöndum saman og höfum hátt. #metoo,“ segir í yfirlýsingunni.

Fram kemur, að kynferðisofbeldi, áreitni og kynbundin mismunun eigi sér stað í hugbúnaðar- og tæknigeiranum, rétt eins og annars staðar í samfélaginu.

„Óþarfi er að taka fram að ekki gerast allir karlar sekir um áreitni eða mismunun – hins vegar verða allt of margar konur fyrir því á starfsferli sínum og það er algerlega óásættanlegt.

Kynbundin mismunun birtist með ýmsum hætti; allt frá niðurlægjandi athugasemdum um útlit eða getu samstarfskvenna og óviðeigandi brandara yfir í kynferðislega áreitni. Það er ólíðandi að ekki sé tekið á umkvörtunum ef sá sem áreitir er metinn „of verðmætur“. Þeir sem gera öðrum óbærilegt að sinna sínu starfi, eru ekki og geta aldrei verið, verðmætari en starfsandinn og fyrirtækið. Slíkt verðmætamat og vinnubrögð þarf að uppræta,“ segir í yfirlýsingunni.

„Við krefjumst þess að allir samverkamenn okkar taki ábyrgð á að uppræta vandamálið; að viðeigandi yfirvöld, stéttarfélög og fyrirtæki í hugbúnaðar-, vef- og tækni-iðnaði taki af festu á málinu og komi sér upp verkferlum og viðbragðsáætlun gegn kynbundinni áreitni.  Kynbundið ofbeldi, áreitni og mismunun á ekki að líðast, hvorki á vinnustöðum né annarstaðar i samfélaginu. Látum meðfylgjandi frásagnir tæknikvenna af kynferðisáreitni og kynbundnu áreiti og mismunun í tækni-, upplýsinga- og hugbúnaðariðnaði vera þær síðustu.

Við förum fram á fræðslu fyrir starfsfólk á birtingarmyndum kynferðislegrar áreitni og kynbundinnar mismununar og hvernig fyrirtækið muni taka á slíku ef upp kemur. Við áréttum mikilvægi þess að fyrirtæki og starfsfólk taki umræðuna og setji sér saman siðareglur, líkt og tíðkast í erlendum stórfyrirtækjum, í fjölmiðlum og stjórnmálum, þar sem grunngildi í rekstri og samskiptum eru áréttuð, undirrituð og yfirfarin reglulega.

Við eigum ekki að þurfa að þegja lengur eða leiða ástandið hjá okkur. 

Við verðskuldum jafnrétti, að okkur sé trúað og sýndur stuðningur. Fyrst og fremst á misréttinu að linna. Við krefjumst þess að fá að vinna vinnuna okkar án áreitni, ofbeldis eða mismununar,“ segir ennfremur. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert