Umferðaróhapp varð á gatnamótum Flatahrauns og Helluhrauns í Hafnarfirði laust fyrir klukkan tvö í dag.
Tveir bílar rákust saman og samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni voru báðar bifreiðarnar fluttar af vettvangi með dráttarbifreið.
Ökumaður og farþegi í annarri bifreiðinni voru fluttir á slysadeild Landspítalans í Fossvogi til skoðunar. Ekki er unnt að greina frá líðan þeirra að svo stöddu.