Hraðhleðslustöðvum fjölgar

Bjarni Már Júlíusson Framkvæmdastjóri ON.
Bjarni Már Júlíusson Framkvæmdastjóri ON. Ljósmynd/Aðsend

Orka náttúrunnar (ON) opnar á næstunni fjórar nýjar hlöður fyrir rafbíla við hringveginn. Verðið á hraðhleðslu verður 39 krónur á mínútuna og munu algeng not af hraðhleðslu kosta fjögur til sex hundruð krónur skiptið. Salan hefst 1. febrúar 2018.

ON hefur unnið að þróunarverkefni fyrir söluna í samstarfi við ýmsa aðila, þar á meðal íslenska nýsköpunarfyrirtækið Faradice. Í þróuninni felst hönnun, uppsetning og prófanir á sölubúnaðinum sem byggist á notkun rafrænna lykla sem tengdir verða með hugbúnaði við greiðslukort handhafa lykilsins, ekki ósvipað greiðslulyklum eldsneytisfélaga. Verðið fyrir þjónustuna ræðst að mestu leyti af kostnaði við uppsetningu og rekstur hlaðanna en  rafmagnsnotkunin sjálf vegur minna. Þetta kemur fram í tilkynningu.

Fleiri en 50 hlöður fyrir lok 2018

Rafbílum hefur fjölgað jafnt og þétt síðustu ár. Fjöldi hreinna rafbíla og tengiltvinnbíla er að nálgast fimm þúsund. 

Á þessu ári hefur ON opnað leiðina milli Akureyrar og Reykjavíkur og varðað Suðurlandið hlöðum allt austur á Kirkjubæjarklaustur. Á næstu dögum mun þessi þjónusta við rafbílaeigendur einnig bjóðast í Freysnesi í grennd við Skaftafell, við Jökulsárlón, á Djúpavogi og við N1 á Egilsstöðum. Á næstu vikum bætast svo við hlöður á Stöðvarfirði, við Minni-Borg í Grímsnesi, við Mývatn og við þjónustustöðvar N1 hvorttveggja við Lækjargötu í Hafnarfirði og í Mosfellsbæ. Hlöður ON verða orðnar fleiri en 50 í árslok 2018.

Á næstunni kemur út ný útgáfa af smáforritinu ON Hleðsla. Appið sýnir hvar hlöður ON er að finna, stystu leið að þeim, hvaða tengjum þær eru búnar og hvort þær eru uppteknar eða hvort viðhald stendur yfir. Endurbæturnar á appinu fela meðal annars í sér að notendur geta stillt það á sína tegund af tengi þannig að upplýsingar um hvort hraðhleðsla er til reiðu á hverjum stað verða sniðnar eftir þeirri stillingu. Þetta kemur einnig fram í tilkynningu. 

Kort af hleðslustöðvum ON
Kort af hleðslustöðvum ON Ljósmynd/Aðsend
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert