Pálma Jónssonar minnst á Alþingi

Pálmi Jónsson.
Pálmi Jónsson.

Steingrímur J. Sigfússon, starfsaldursforseti Alþingis, minntist Pálma Jónssonar, fyrrverandi alþingismanns og ráðherra, á þingsetningarfundi í dag, en Pálmi lést á sjúkrahúsi í Reykjavík 9. október eftir langvarandi veikindi. Hann var á 88. aldursári.

Fram kom í minningarorðunum, að Pálmi hefði tekið sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Norðurlandskjördæmi vestra sumarið 1967 og var kjörinn alþingismaður í þingkosningunum það ár. Hann sat samfellt á Alþingi til 1995, í 28 ár, sat alls á 31 löggjafarþingi.

„Pálmi varð landbúnaðarráðherra í febrúar 1980 í ríkisstjórn Gunnars Thoroddsens og gegndi því embætti fram í maí 1983. Á þingmannsárum sínum átti Pálmi sæti í mörgum stjórnum og ráðum á þeim sviðum þar sem hann beitti sér mest, landbúnaði, orkumálum, byggðamálum og ríkisfjármálum. Hann var yfirskoðunarmaður ríkisreikninga um skeið og formaður bankaráðs Búnaðarbanka Íslands og stofnlánadeildarinnar síðustu ár sín á þingi og nokkur ár eftir það.

Á Alþingi sat Pálmi Jónsson lengi í landbúnaðarnefnd, en einnig í öðrum þingnefndum og þótti öflugur talsmaður síns flokks hvar sem hann var kjörinn til setu. Hann var formaður fjárveitinganefndar í nokkur ár og síðar varaformaður fjárlaganefndar og lét mjög til sín taka á þeim vettvangi,“ sagði Steingrímur.

„Með störfum sínum og dugnaði, hófsamlegum málflutningi og skýrum sjónarmiðum komst Pálmi, er leið á þingferil hans, í forystusveit síns flokks. Hann var þó ekki ávallt samstiga forystunni og fór um tíma aðrar leiðir en naut ávallt trausts og vinsælda í héraði og meðal kjósenda sinna.

Pálmi Jónsson var jafnan hressilegur í bragði og kappsamur, íþróttamannslega vaxinn, bar sig vel og með reisn. Hann var hreinskiptinn og léttur í lund og átti gott með samskipti við fólk. Pálmi var þó alvörumaður að eðli og fastur fyrir þegar því var að skipta. Tilsvör hans og látbragð varð mörgum samferðamönnum hans minnisstætt og vekur enn hlýjar minningar hjá þeim sem honum kynntust.

Með Pálma Jónssyni er genginn öflugur talsmaður bænda og landsbyggðar,“ sagði Steingrímur að lokum og bað í framhaldinu þingheim að minnast Pálma með því að rísa úr sætum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert