1.077 sótt um alþjóðlega vernd á árinu

Útlendingastofnun.
Útlendingastofnun. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

1.033 sóttu um alþjóðlega vernd á fyrstu ellefu mánuðum ársins, en flestir komu frá Georgíu og Albaníu. Umsóknir í nóvember voru 67 og það sem af er desembermánuði hafa 44 einstaklingar sótt um alþjóðlega vernd. Heildarfjöldi umsókna það sem af er ári er því 1.077. Þetta kemur fram í tölum Útlendingastofnunar sem voru birtar í dag.

Umsækjendur í nóvember voru af 17 þjóðernum. Flestir þeirra, eða 15 talsins, komu frá Albaníu og næstflestir, eða 14 talsins, komu frá Georgíu. 54% umsækjenda komu frá ríkjum á lista yfir örugg upprunaríki. 78% umsækjenda voru karlkyns og 22% kvenkyns. 82% umsækjenda voru fullorðnir og 18% yngri en 18 ára. Þrír umsækjendur kváðust vera fylgdarlaus ungmenni. 

Niðurstaða fékkst í 133 mál í nóvembermánuði en það sem af er ári hafa 1.198 umsóknir um alþjóðlega vernd verið afgreiddar hjá Útlendingastofnun. 60 umsóknir voru teknar til efnislegrar meðferðar í nóvember en af þeim voru 45 afgreiddar með ákvörðun í forgangsmeðferð. 20 mál voru afgreidd með ákvörðun um endursendingu á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar, fimm mál voru afgreidd með synjun á grundvelli þess að viðkomandi höfðu þegar fengið vernd í öðru ríki og 48 umsækjendur drógu umsóknir sínar til baka.

52 þeirra 60 mála sem tekin voru til efnislegrar meðferðar lauk með ákvörðun um synjun og átta með ákvörðun um veitingu verndar, viðbótarverndar eða dvalarleyfis af mannúðarástæðum. Flestir þeirra sem var synjað um vernd komu frá Albaníu, eða 19 talsins. Næstflestir frá Georgíu, eða 16 talsins. Frá Írak, Marokkó og Palestínu fengu svo tveir einstaklingar frá hverju landi vernd.

Um 520 einstaklingar njóta þjónustu í verndarkerfinu á Íslandi um þessar mundir, þar af eru um 260 manns í þjónustu hjá félagsþjónustu Reykjavíkurborgar, Hafnarfjarðarbæjar og Reykjanesbæjar, á grundvelli þjónustusamninga við Útlendingastofnun. Móttöku- og þjónustuteymi Útlendingastofnunar veita um 260 einstaklingum þjónustu í búsetuúrræðum stofnunarinnar.

Stoðdeild ríkislögreglustjóra flutti 31 einstakling úr landi í nóvember. Tveir einstaklingar yfirgáfu landið sjálfviljugir með stuðningi Alþjóðafólksflutningastofnunarinnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert