Framlögin aukin um 450 milljónir

Sjúkrahúsið á Akureyri.
Sjúkrahúsið á Akureyri. mbl.is/Sigurður Bogi

Ríkisstjórnin hefur samþykkt tillögu meirihluta fjárlaganefndar um að framlög til heilbrigðisstofnana á landsbyggðinni verði 450 milljón krónum hærri en áður var gert ráð fyrir í fjárlagafrumvarpinu.

Breytingatillaga þessa efnis er til umfjöllunar við aðra umræðu um fjárlög næsta árs sem nú stendur yfir á Alþingi.

Í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins segir að 200 milljóna króna framlag renni til þess að styrkja heilsugæsluþátt heilbrigðisstofnananna og 200 milljónir króna fari í að styrkja sjúkrasvið þeirra.

Auk þessa fái Sjúkrahúsið á Akureyri 50 milljónir króna til að efla og þróa sérhæfða göngudeildarþjónustu spítalans.

„Það er forgangsmál að allir landsmenn fái notið góðrar heilbrigðisþjónustu, óháð efnahag og búsetu. Þetta viðbótarframlag styður við þá stefnu,“ er haft eftir Svandísi Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra í tilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert