Hávaðaseggir í annarlegu ástandi að horfa á indverskan gúrú

Ljósmynd/Kristinn Freyr Jörundsson

Óskað var eftir aðstoð lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á sjöunda tímanum í morgun út af miklum hávaða sem barst frá tveimur karlmönnum sem voru inni í íbúð í fjölbýlishúsi í Breiðholti í Reykjavík. Það kom í ljós að mennirnir voru í talsvert annarlegu ástandi.

Að sögn lögreglu sögðust mennirnir hafa verið að horfa á indverskan gúrú í sjónvarpinu og þess vegna hafi heyrst svona hátt í þeim.

Lofuðu þeir að hafa lægra svo það væri ekki frekara ónæði af þeim, að því er lögreglan á höfuðborgarsvæðinu segir í tilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert