Samkomulag um starfslok Loga Bergmanns

Logi Bergmann Eiðsson.
Logi Bergmann Eiðsson. mbl.is/Stella

365 miðlar hf. og Logi Bergmann Eiðsson hafa komist að samkomulagi vegna starfsloka Loga sem felur m.a. í sér að hann hefji hefðbundin útvarpsstörf 1. mars 2018 og hefðbundin sjónvarpsstörf 1. maí 2018.

Árvakur hf. og Fjarskipti hf. hafa samþykkt samkomulag þetta fyrir sitt leyti.

Þetta kemur fram í sameiginlegri tilkynningu frá aðilum dómsmáls um lyktir máls.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert