„Það getur verið mikil kúnst að reka smiðshöggið á verkið, en sú vinna sem við höfum unnið hérna undanfarnar vikur fer ekki frá okkur,“ segir Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, í samtali við mbl.is eftir að Starfsgreinasambandið sleit viðræðum á tólfta tímanum í morgun.
Halldór Benjamín segir niðurstöðuna vissulega vonbrigði en að sjálfsögðu muni aðilar hittast áfram og funda um gerð kjarasamnings.
Hann tekur undir með formanni SGS um að árangur hafi náðst í ýmsum málum undanfarnar vikur. „Gangur hefur verið góður í mörgum þáttum en því miður náum við ekki saman í öllu.“
Viðbúið er að SGS hefji nú undirbúningsvinnu vegna verkfallsaðgerða. Halldór Benjamín segir ljóst að SA sé mikið í mun að afstýra öllum verkfallsaðgerðum. „Ekki bara Samtökum atvinnulífsins heldur samfélaginu í heild sinni. Verkföll eru gríðarlega kostnaðarsöm, valda miklu álagi á starfsfólk sem tekur þátt í þeim og ég tala nú ekki um viðskiptavini og eigendur þeirra fyrirtækja sem lenda í verkfallsaðgerðum.“
„Verkefnið er alveg skýrt, að koma í veg fyrir frekari verkföll, þar með talið hjá Starfsgreinasambandinu. Það er þannig að myrkrið er dimmast rétt fyrir dagrenningu og ég held að það sé staðan sem er uppi í dag.“