Eitt nýtt smit kórónuveirunnar greindist í gær hér á landi. Sá smitaði greindist hjá Íslenskri erfðagreiningu og var utan sóttkvíar við greiningu. Tvö virk smit eru nú í landinu. Þetta kemur fram í nýjum tölum á covid.is.
534 sýni voru tekin í gær, 70 á sýkla- og veirufræðideild Landspítalans og 464 hjá Íslenskri erfðagreiningu.
Alls hafa nú 1.806 smit greinst á Íslandi, þar af átta í maí. Tekin hafa verið 61.025 sýni.