Snertir um 120 þúsund manns

Almenna litakóðakerfið tók gildi í dag en kerfið sem snertir …
Almenna litakóðakerfið tók gildi í dag en kerfið sem snertir skólastarf tekur gildi um áramót. mbl.is/Hari

Í nýju litakóðakerfi vegna Covid-19 er sérstaklega kveðið á um þær takmarkanir sem gilda innan skólakerfisins innan hvers litar fyrir sig. Markmið kerfisins er að auka fyrirsjáanleika og einfalda skipulag sóttvarnaráðstafana í skóla- og frístundastarfi hér á landi. Kerfið sem snertir skólastarfið er ekki lagalega bindandi, einungis hugsað til viðmiðunar.

Almenna litakóðakerfið tók gildi í dag en kerfið sem snertir skólastarf tekur gildi um áramót.

„Viðvörunarkerfi fyrir skóla- og frístundastarf snertir alla nemendur, kennara, starfsfólk og foreldra barna og ungmenna á öllum skólastigum, alls um 120 þúsund manns. Í því má finna yfirlit yfir útfærslur og áhrif sóttvarnaráðstafana á mismunandi skólastigum og hversu langan fyrirvara má gera ráð fyrir vegna breytinga á þeim,“ segir í tilkynningu frá stjórnarráðinu um málið. 

Reglugerð stýrir áfram

Eins og áður segir er kerfið ekki lagalega bindandi heldu hugsað til viðmiðunar og undirbúnings fyrir skólasamfélagið í heild sinni. 

„Gildandi reglugerðir heilbrigðisráðherra munu áfram stýra sóttvarnaráðstöfunum í skólum. Almennar samkomutakmarkanir gilda nema annað sé sérstaklega tekið fram. Gert er ráð fyrir því að breytingar á lit eða stigi varúðarráðstafana verði tilkynntar með reglugerðarbreytingum,“ segir í fyrrnefndri tilkynningu. 

Litaflokkunin er unnin í samráði við almannavarnardeild ríkislögreglustjóra, sóttvarnaryfirvöld og fulltrúa allra skólastiga. Byrjað verður að vinna eftir henni frá og með næstu áramótum.

Hér má finna frekari upplýsingar um hvaða takmarkanir gilda á hverju viðvörunarstigi fyrir sig. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert