Fimm á Landspítala með virkt smit

Landspítalinn í Fossvogi.
Landspítalinn í Fossvogi. mbl.is/Jón Pétur

Fimm sjúklingar eru inniliggjandi á Landspítalanum með virkt kórónuveirusmit og 28 sem hafa lokið einangrun. Þrír eru á gjörgæslu, þar af eru tveir í öndunarvél en annar þeirra hefur lokið einangrun.

Þetta kemur fram á vefsíðu Landspítalans í tilkynningu frá viðbragðsstjórn og farsóttanefnd.

Alls hafa 17 manns látist á spítalanum í þriðju bylgju veirunnar. 131 sjúklingur er í eftirliti á Covid-19 göngudeild spítalans, þar af 22 börn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert