Vona að ástandið fari skánandi

Frá Seyðisfirði.
Frá Seyðisfirði. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Hættuástand er enn á rýmingarsvæði á Seyðisfirði og umferð þar óheimil sem stendur. Beðið er birtingar til að meta ástand og gera ráðstafanir til að tryggja öryggi.

Gera má ráð fyrir að rýming standi í sólarhring til viðbótar að minnsta kosti, að því er kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni.

Dregið hefur lítillega úr úrkomu og standa vonir því til að ástandið fari skánandi úr þessu. Versni staðan er áætlun um frekari rýmingar eða útvíkkun á varúðarsvæðum. Íbúar eru beðnir um að gæta fyllstu varúðar sem fyrr. Næstu tilkynningar er að vænta um hádegi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert