Óvissa enn til staðar

Lögreglan á Austurlandi segir að verið sé að rýna gögn sem safnað hafi verið og varði meðal annars stöðugleika ofan við rýmd hús á Seyðisfirði. Vonir standi til að niðurstaða liggi fyrir síðar í dag. Ákvörðun verði í kjölfarið tekin um mögulega afléttingu rýmingar og þá hversu mikil hún verði.

„Óvissa er enn til staðar og kann því að vera að rýming verði óbreytt og staðan tekin að nýju í fyrramálið. Tilkynning verður send á þessum vettvangi um leið og niðurstaða liggur fyrir en eigi síðar en um klukkan 18,“ segir í tilkynningu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert