Gasmælarnir seldust fljótt upp

Steindór segir að margir séu áhugasamir um kaup á gasmælum …
Steindór segir að margir séu áhugasamir um kaup á gasmælum og grímum fyrir eldgosaferðir. mbl.is/Arnþór Birkisson

„Við erum að reyna að afgreiða alla sem vilja fá mæla á sem skemmstum tíma en það er mikið álag núna. Það er svo sem hefðbundið við þessar aðstæður,“ segir Steindór Gunnlaugsson, framkvæmdastjóri verslunarinnar Dynjanda.

Mikil ásókn hefur verið í verslunina eftir að eldgos hófst í Fagradalsfjalli. Margir huga að ferðum að gosstöðvunum og spyrjast fyrir um búnað, svo sem gasmæla og gasgrímur. Steindór segir að gasmælar séu uppseldir í augnablikinu en von sé til þess að ný sending verði til reiðu eftir næstu helgi. Eitthvað er eftir af gasgrímum í versluninni en verulega hefur þó gengið á birgðirnar, að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag.

„Við vorum svo sem byrjuð að undirbúa þetta þegar umræða um gos hófst en þetta hefur engu að síður gerst hratt. Það hefur verið mjög erfitt að fá eins mikið og maður vill af búnaði, Covid hefur truflað alla afgreiðslu, en við komumst þó í góðan skammt af grímum og filterum.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert