Á ellefta tímanum í kvöld samþykkti borgarstjórn Reykjavíkur áframhaldandi tímabundna lokun hluta Laugavegar, en heimild til lokunar, sem hafði verið framlengd eftir síðasta sumar yfir allan veturinn, rann út 1. maí. Tæknilega séð var því Laugavegurinn að fullu opinn fyrir umferð bifreiða í tæplega fjóra sólarhringa þangað til borgarstjórn samþykkti áframhaldandi lokun.
Málið nær aftur til síðasta hausts þegar borgarráð hafði samþykkt að hinar svokölluðu sumargötur á Laugavegi milli Frakkastígs og Klapparstígs, og Vatnsstígur milli Laugavegar og Hverfisgötu yrðu áfram tímabundnar göngugötur til 1. maí 2021.
Skipulags- og samgönguráð og borgarstjórn Reykjavíkur samþykktu að auglýsa eftir tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir Laugaveginn sem göngugötu. Gert var ráð fyrir að deiliskipulagið yrði afgreitt á fyrsta fjórðungi ársins 2021 og að það tæki gildi fyrir 1. maí. Það gekk hins vegar ekki eftir.
Lagt var til í skipulags- og samgönguráði að framlengja á ný undanþáguákvæði um tímabundna lokun. Mótatkvæði bárust bæði í borgarráði og skipulags- og samgönguráði. Þar af leiðandi þarf málið að fara í fullnaðarafgreiðslu í borgarstjórn. Borgarstjórn kom hins vegar ekki saman fyrr en í dag, líkt og hefðbundið er á fyrsta þriðjudegi mánaðar. Var fundargerð borgarráðs þá tekin fyrir ásamt öðrum málum.
Vigdís Hauksdóttir, borgarfulltrúi Miðflokksins, mætti fyrst í pontu við umræðu málsins í borgarstjórn og gagnrýndi stjórnsýsluna í kringum málið. Gagnrýndi hún jafnframt lokun Laugavegar almennt og að lokunin hefði mikil áhrif á verslun á svæðinu, sem hún sagði nú vera „draugabæ Dags B. Eggertssonar“.
Eyþór Arnalds, oddviti Sjálfstæðisflokksins í borginni, mætti einnig í pontu og gagnrýndi að enn væri verið að framlengja tímabundna lokun götunnar, þegar hið rétta væri að verið væri að loka henni varanlega. Það hefði hins vegar ekki gengið upp í deiliskipulagsvinnunni og því væri tímabundin lokun í formi varanlegrar lokunar misnotkun á því hugtaki.
Í framhaldinu var gengið til atkvæða. Vigdís, auk Kolbrúnar Baldursdóttur, borgarfulltrúa Flokks fólksins, og sex af átta borgarfulltrúum Sjálfstæðisflokksins greiddu atkvæði gegn því að samþykkja fundargerð borgarráðs og þar með lokunina. Allir fulltrúar meirihlutans og Sanna Magdalena Mörtudóttir, borgarfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands, greiddu atkvæði með samþykkt. Hildur Björnsdóttir og Katrín Atladóttir, borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, sátu hjá við atkvæðagreiðsluna.