Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir hvatti stjórnvöld í minnisblaði sínu til að grípa til þekktra aðgerða vegna fjölgunar Covid-smita og lagði til hliðsjónar minnisblöð frá 22. júlí, 24. ágúst og 12. september og 18. október. Ólíklegt er að nýkynntar samkomutakmarkanir muni skila miklum árangri.
Þetta sést í minnisblaði Þórólfs til heilbrigðisráðherra vegna fjölgunar Covid-smita.
Samkvæmt reglugerðinni, sem tekur gildi í næstu viku, mega 500 koma saman í stað 2.000 áður en með notkun hraðprófa verður þó heimilt að halda viðburði fyrir allt að 1.500 manns.
Grímuskylda, sem tekur gildi á miðnætti, verður tekin upp á sitjandi viðburðum og í verslunum og afgreiðslutími skemmtistaða styttur um tvo klukkutíma. Skal þeim lokað klukkan ellefu og síðasti maður kominn út klukkan tólf. Einnig verður skerpt á eins metra reglunni.
Um svipaðar takmarkanir er að ræða og voru í minnisblaði Þórólfs 12. september og tóku gildi 15. september. Þá máttu einnig 500 manns koma saman og 1.500 manns með notkun hraðprófa. Enn fremur var skemmtistöðum gert að loka á miðnætti, líkt og nú verður raunin.
Þórólfur bendir á að á gildistíma reglugerðarinnar, sem tók gildi 15. september, hafi daglegur fjöldi smita aukist úr 20 í rúmlega 60.
Hins vegar taldi Þórólfur meiri líkur á því að takmarkanir líkar þeim sem tóku gildi í lok ágúst myndu skila tilætluðum árangri. Þá máttu 200 koma saman og 500 með notkun hraðprófa.
Þórólfur bendir enn fremur á að frá því að yfirstandandi bylgja faraldursins hófst um miðjan júlí hafi tæplega 7.300 greinst með Covid-19, um 160 lagst inn á sjúkrahús (2,2%), 33 lagst inn á gjörgæsludeild, 17 þurft á aðstoð öndunarvélar að halda, einn þurft að fara í hjarta- og lungnavél og fjórir látist.