Fluttur til Reykjavíkur eftir bílslys á Suðurlandi

Einn slasaðist þegar tveir bílar skullu saman á Biskupstungnabraut í …
Einn slasaðist þegar tveir bílar skullu saman á Biskupstungnabraut í dag. Mynd úr safni. mbl.is/Sigurður Ægisson

Tveir bílar skullu saman á Biskupstungnabraut á sjötta tímanum í dag. Í öðrum bílnum var einn og í hinum bílnum fimm manns. Þetta staðfestir Oddur Árnason yfirlögregluþjónn í samtali við mbl.is.

Ökumaðurinn sem var einn í bíl slasaðist og var fluttur til Reykjavíkur til aðhlynningar.

Lítið er vitað um líðan hinna fimm sem voru í hinum bílnum. Minni háttar slys voru sögð á þeim, ef einhver.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert