Garðhús fuku meðan allt var á floti í Eyjum

Um ökklahátt vatnsból myndaðist á götum úti.
Um ökklahátt vatnsból myndaðist á götum úti. mbl.is/Óskar Pétur Friðriksson

Björgunarfélag Vestmannaeyja var kallað út á áttunda tímanum í kvöld vegna tveggja garðhúsa sem voru að fjúka úr görðum við Heiðaveg annars vegar og Hólagötu hins vegar. Á sama tíma var um ökklahátt lón á götum úti.

Hjálmar Baldursson, sem situr í svæðisstjórn Björgunarfélags Vestmannaeyja, segir aðgerðir hafi staðið stutt yfir. 

„Þeir kláruðu þetta bara á mettíma, strákarnir sem voru þarna úti,“ segir Hjálmar. 

Aðgerðir gengu skjótt fyrir sig.
Aðgerðir gengu skjótt fyrir sig. mbl.is/Óskar Pétur Friðriksson

Sól og blíða í Eyjum

Þá varð stífla í niðurföllunum til þess að um ökklahátt vatnsból myndaðist á götum úti. Spurður út í það segir Hjálmar að bæjaryfirvöld hafi séð um að leysa stíflurnar og allt sé komið í lag núna.

Spurður út í framhaldið segir hann veðrið að mestu gengið yfir í Vestmannaeyjum.

„Við erum bara á leiðinni heim. Það er sól og blíða í Eyjum.“

mbl.is/Óskar Pétur Friðriksson
mbl.is/Óskar Pétur Friðriksson
mbl.is/Óskar Pétur Friðriksson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert