Huga þurfi að niðurföllum

Gert klárt fyrir vatnsveður í Kópavogi.
Gert klárt fyrir vatnsveður í Kópavogi. mbl.is/Árni Sæberg

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu varar við talsverðri rigningu eða snjókomu á meðan óveðrið gengur yfir í dag og í kvöld. Rigning og leysing getur valdið vatnselg og því þurfi að reyna að tryggja að vatn komist í fráveitukerfi til að forðast vatnstjón.

Íbúar eru því minntir á að huga að ræsum og niðurföllum við hús sín. Bæjarstarfsmenn hafa verið í óðaönn í dag við að hreinsa og brjóta klaka við niðurföll en óvíst er að sveitar­fé­lögin nái að hreinsa þau öll fyrir kvöldið.

Líkur eru á foktjóni og ráðleggur lögreglan fólki að ganga frá lausum munum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert