Rafmagnstruflanir víða – Vatnslaust í Mosfellsbæ

Um er að ræða háspennubilun við Varmadal að Skálafelli. Mynd …
Um er að ræða háspennubilun við Varmadal að Skálafelli. Mynd úr safni. mbl.is/Helgi Bjarnason

Rafmagnsleysi veldur því að ekki er hægt að dæla köldu vatni í Helgafellslandi í Mosfellsbæ. 

Um er að ræða háspennubilun við Varmadal að Skálafelli.

Þetta staðfestir Ólöf Snæhólm Baldursdóttir, upplýsingafulltrúi Veitna, í samtali við mbl.is. Þar að auki hefur tilkynning verið sett á vef Veitna þessa efnis.

Vonast er til þess að rafmagn verði komið á innan stundar og benda Veitur á að slökkva á rafmagnstækjum sem gætu valdið tjóni er rafmagn kemur á að nýju.

Ljós flöktir

Víða hafa orðið rafmagnstruflanir en mbl.is hafa borist tilkynningar um flöktandi ljós í Vesturbæ, Mosfellsbæ og á Kirkjusandi meðal annars. Spurð út í þær truflanir segir Ólöf skýringuna einfaldlega veðrið.

„Það er bara álag á orkukerfinu eins og er, út af veðrinu. Það hafa verið að detta inn háspennubilanir og annað. Þetta er bara veðrið.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert