Meirihluti stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur var sammála um að beina sölu á Ljósleiðaranum ehf., að fagfjárfestum. Formaður stjórnarinnar segir ekki um að ræða fjárfestingarkost sem eðlilegt sé að beina til almennings.
Borgarstjórn Reykjavíkur samþykkti í maí að auka hlutafé Ljósleiðarans um 3.250 milljónir króna og bjóða hluthöfum til kaups. Um er að ræða lokað útboð sem einungis er opið hæfum fjárfestum og er stjórn Ljósleiðarans falið að framkvæma og meta væntanleg kauptilboð.
Gylfi Magnússon, formaður stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur, segir ýmsar leiðir hafa verið skoðaðar varðandi sölu á Ljósleiðaranum. Að endingu var skýr meirihluti hjá stjórn Orkuveitunni fyrir því að bjóða einungis fagfjárfestum kaup á fyrirtækinu.
„Rökin fyrir því voru meðal annars að því fylgir meiri kostnaður, meira umstang og tekur lengri tíma að bjóða til sölu til almennings, vegna þess að það er mun stífara regluverk sem gildir um það.“
Til viðbótar segir Gylfi að færa megi rök fyrir því að ekki sé um að ræða fjárfestingarkost sem eðlilegt sé að beina til almennings
„Þetta er í fyrsta lagi tiltölulega lítill hluti, enginn sérstök áform um að selja meira og engin áform um skráningu í kauphöll,“ segir hann og því sé frekar um að ræða eðlilegri fjárfestingarkost fyrir fagfjárfesta.
Hann tekur þó fram að fagfjárfestar séu að verulegu leiti að fjárfesta fyrir almenning og nefnir lífeyrissjóðina sem dæmi. „Þá eru það sérfræðingar hjá til dæmis lífeyrissjóðunum, sem leggja mat á fjárfestingarkostinn í stað þess að beina þessu að almenningi.“
Þá bendir Gylfi á að Orkuveitan sé í almannaeigu, það er að segja eigu þriggja sveitarfélaga með næstum helming íbúa að baki sér. Almenningur muni þannig áfram eiga mikinn meirihluta í Ljósleiðaranum, óháð því hver kaupi þann hlut sem eigi að selja.
„En ég á nú svo sem von á því að hann fari að verulegu leiti líka til fjárfesta sem tengjast almannahagsmunum,“
Aðspurður segir hann að stjórn Orkuveitunnar muni leggja Ljósleiðaranum línurnar um það hvernig á að meta og raða kauptilboðum. Hann segir stjórn Orkuveitunnar þannig koma til með að hafa mikið að segja um hvaða kauptilboð verði valið.
„Síðan hefur fjármálafyrirtæki verið falið að annast samskipti við fjárfesta og útfærsluna. Þannig að ég held að þetta verði nú allt saman í tiltölulega skýru ferli, með skýrum leikreglum,“ segir hann.
Það liggur fyrir að hlutafjáraukningin mun gera Ljósleiðaranum kleift að eflast allverulega að sögn Gylfa.
„Það mun örugglega skipta töluvert meira máli fyrir almenning, heldur en eignarhaldið á hlutabréfunum, að þessi markaður sé með öflugum keppinautum, bestu tæknina og virki vel,“ segir stjórnarformaðurinn, sem telur söluna vera mikið framfaraskref og því hlakki hann til að fylgjast með uppbyggingunni.