Kristinn Pétursson býður sig fram í Norðausturkjördæmi

Kristinn Pétursson
Kristinn Pétursson Kristján Kristjánsson

Kristinn Pétursson, fiskverkandi á Bakkafirði, hefur ákveðið að gefa kost á sér í annað til þriðja sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi í komandi kosningum. Kristinn sat á þingi fyrir Sjálfstæðisflokkinn um tíma á níunda áratug síðustu aldar.

Aðalfundur Kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi verður haldinn helgina 14.-15. október og liggur fyrir fundinum tillaga um að viðhafa prófkjör við uppstillingu framboðslista Sjálfstæðisflokksins fyrir alþingiskosningarnar næsta vor.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert