Frestur til að tilkynna um framboð fyrir prófkjör Samfylkingarinnar í Reykjavík rennur út nk. laugardag 21. október kl. 14. Prófkjör til að velja frambjóðendur á lista Samfylkingarinnar í Reykjavíkurkjördæmum norður og suður fyrir Alþingiskosningarnar vorið 2007 fer fram laugardaginn 11. nóvember 2006.
Þeir hafa rétt til að bjóða sig fram í prófkjörinu sem eru félagar í Samfylkingunni og eru kjörgengir til Alþingis og fá meðmæli minnst 30 og mest 50 flokksfélaga með lögheimili í Reykjavík. Frambjóðendur skulu tilkynna um framboð sitt skriflega til skrifstofu Samfylkingarinnar að Hallveigarstíg 1, 101 Reykjavík, að því er segir í tilkynningu.