Kjörstjórn í prófkjöri Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi hefur uppgötvað að 87 atkvæði úr einum kjörkassa voru ekki talin í prófkjörinu, sem fór fram 4. nóvember. Í tilkynningu segir, að kjörstjórn hafi yfirfarið þessi atkvæði og þau breyti í engu röð frambjóðenda á listanum.