Yngvi leiðir Á-listann í Rangárþingi ytra

Þessi hópur skipar efstu sex sæti Á-listans.
Þessi hópur skipar efstu sex sæti Á-listans.

Ákveðið hefur verið hverjir skipa efstu sæti Á-listans í Rangárþingi ytra fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar.  

Yngvi Karl Jónsson, forstöðumaður, mun leiða listann, Margrét Harpa Guðsteinsdóttir, bóndi og matráður, skipar annað sætið, Sigdís Oddsdóttir, leiðbeinandi, kemur fersk inn í þriðja sæti listans, Steindór Tómasson, verkamaður og sveitarstjórnarmaður, skipar fjórða sætið, Magnús H. Jóhannsson, sviðsstjóri og sveitarstjórnarmaður, er í fimmta sæti og Yngvi Harðarson, vélstjóri, skipar sjötta sætið, segir í fréttatilkynningu.


mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert