Guðni fremstur í Reykjavík norður

Fyrstu tölur úr Reykjavíkurkjördæmi norður kl. 23.00.
Fyrstu tölur úr Reykjavíkurkjördæmi norður kl. 23.00.

Fyrstu tölur í Reykjavíkurkjördæmi norður hafa verið lesnar upp, en alls hafa verið talin 6.149 atkvæði. Guðni Th. Jóhannesson hefur fengið 2.036 atkvæði og næst á eftir kemur Halla Tómasdóttir með 1.497 atkvæði. Andri Snær Magnason kemur rétt á eftir með 1.456 atkvæði.

Davíð Oddsson er með 737 atkvæði, Sturla Jónsson 206, Elísabet Jökulsdóttir 88, Guðrún Margrét Pálsdóttir 21, Ástþór Magnússon 13 og Hildur Þórðardóttir 11 atkvæði. 

Auðir seðlar eru 60 og aðrir ógildir 24.

Stuðningsmenn Guðna eru kátir.
Stuðningsmenn Guðna eru kátir. mbl.is/Eggert
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert