Kosningavaka Guðna Th. orðin sigurpartí

Svona er stemmningin á kosningavöku Guðna.
Svona er stemmningin á kosningavöku Guðna. mbl.is/Eggert

Kosningavaka Guðna Th. Jóhannessonar er mikið breytt frá því sem var þegar fyrstu tölur úr Suðurkjördæmi voru lesnar upp í dag. Plötusnúðar hafa tekið partíið yfir og spilað lög á borð við Abba-slagarann „The Winner Takes It All“. 

Ómögulegt hefur reynst að ná tali af Guðna Th. í kvöld sökum mannfjöldans í kringum hann. Hann hefur nokkrum sinnum lýst því yfir að hann vilji knúsa móður sína en hefur ekki tekist það þar sem sífellt fleiri stuðningsmenn koma að máli við hann, knúsa hann eða taka mynd af sér með forsetaefninu.

Aðeins hefur fækkað á kosningavökunni síðan Guðni Th. kom í hús en enn er mikill fjöldi á svæðinu og stuðningsmenn Guðna Th. virðast sælir með kosninguna sem hann hefur hlotið í forsetakosningunum af þeim atkvæðum sem búið er að telja.

Stuðningsmenn Guðna eru hressir.
Stuðningsmenn Guðna eru hressir. mbl.is/Eggert
Guðni Th. kampakátur með stuðningsmönnum sínum.
Guðni Th. kampakátur með stuðningsmönnum sínum. mbl.is/Eggert
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert